Umferðin & okkar daglega líf

Vísindagarðar HÍ standa fyrir viðburðaröð sem nefnist Umferðin & okkar daglega líf þar sem fjallað er um samgöngumál og lausnir. Markmiðið er að efna til samtals um samgöngur í okkar nærumhverfi og vilja Vísindagarðar leggja sitt af mörkum í þeirri miklu umræðu sem nú á sér stað um þróun samgöngumála og hvernig aðrir kostir en einkabíllinn geti verið hagkvæmari. 

Á þessum viðburði verða borgarhönnun og samgöngumál í forgrunni og er dagskrá unninn í tengslum við HönnunarMars 2024. Við fáum til okkar borgarhönnuð og arkitekta sem segja frá vinnu sinni í tengslum við borgarhönnun og stærri þróunarverkefni sem eru í mótun.

Viðburðurinn verður haldinn þriðjudaginn 23. apríl milli kl. 8:45 – 11:00 í stóra salnum í Grósku, Bjargargötu 1, 102 Reykjavík. 


Öll eru velkomin en endilega skráið ykkur svo við getum áætlað rétt magn veitinga.