Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 26/2024

Nr. 26/2024 12. janúar 2024

GJALDSKRÁ
fyrir sorphirðu og sorpeyðingu í Sveitarfélaginu Hornafirði.

1. gr.

Almennt.

Sveitarfélagið Hornafjörður innheimtir gjöld vegna meðferðar úrgangs í sveitarfélaginu í sam­ræmi við 11. gr. samþykktar um meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði, nr. 236/2018.

 

2. gr.

Íbúðarhúsnæði.

Sorpgjald samkvæmt þessari grein er samanburður af föstu gjaldi og breytilegu gjaldi. Breyti­legt gjald er lagt á í samræmi við fjölda og tegund sorptunna sem húseigandi sótti um.

Sorpgjöld á heimili – fast gjald Árgjald    
  Rekstur grenndar- og söfnunarstöðva og annar fastur kostnaður 15.772 kr.
Sorpgjöld á heimili – breytilegt gjald Árgjald    
  Blandaður úrgangur  
    140 l ílát 14.000 kr.
    240 l ílát 24.000 kr.
    660 l ílát 105.600 kr.
    1.100 l ílát 176.000 kr.
  Lífúrgangur  
    35 l ílát 4.000 kr.
    140 l ílát 8.000 kr.
    240 l ílát 19.200 kr.
  Pappír  
    140 l ílát 5.000 kr.
    240 l ílát 6.000 kr.
    660 l ílát 8.000 kr.
    1.100 l ílát 24.000 kr.
  Plast  
    140 l ílát 7.000 kr.
    240 l ílát 12.000 kr.
    660 l ílát 33.000 kr.
    1.100 l ílát 55.000 kr.
Önnur gjöld Gjald     
  Breytingakostnaður við ílát 3.500 kr.

 

Ofangreind gjöld skulu innheimt með fasteignagjöldum og er gjalddagi hinn sami og fasteigna­gjalda.

 

3. gr.

Atvinnuhúsnæði.

Í samræmi við 23. gr. laga um meðhöndlun úrgangs nr. 55/2003, er fast gjald 35.000 kr. lagt á fyrirtækjalóðir í Sveitarfélaginu Hornafirði til að standa straum af kostnaði við þjónustu á söfn­unar­stað og urðunarstað. Gjöld skulu innheimt með fasteignagjöldum og er gjalddagi hinn sami og fasteigna­­gjalda.

 

4. gr.

Móttökugjöld á söfnunarstöð.

Íbúar greiða móttökugjöld á söfnunarstöð sveitarfélagsins eftir rúmmáli og úrgangstegund. Starfs­maður söfnunarstöðvar metur í hvaða flokk úrgangur fellur skv. gjaldskrá, að fenginni lýsingu úrgangshafa og miðað við umfang farms. Fyrirtæki greiða fyrir úrgang eftir þyngd (kr./kg) og skulu slíkir farmar vigtaðir á hafnarvog sveitarfélagsins á opnunartíma hennar. Ekki er tekið neitt gjald fyrir móttöku á flokkuðum úrgangi sem ber úrvinnslugjald. Gjöld samkvæmt þessari grein eru ákvörðuð í gjaldskrá fyrir söfnunarstöð úrgangs á Höfn í Sveitarfélaginu Hornafirði.

 

5. gr.

Sumar- og frístundahús.

Í sumarhúsahverfum, þar sem sumarhús eru 20 eða fleiri, skal einnig leggja sorpeyðingargjöld á hvert sumar- eða frístundahús árlega enda verða sett upp sorpílát í nánd við sumarhúsahverfið yfir mesta ferðamannatímann frá 15. maí – 15. september.

Sorphirðugjald 9.028 kr.
Sorpeyðingargjald 9.200 kr.

 

Ofangreind gjöld skulu innheimt með fasteignagjöldum og er gjalddagi hinn sami og fasteigna­gjalda.

 

6. gr.

Eyðing dýraleifa.

Á búfjáreigendur er lagt sérstakt gjald til að standa straum af kostnaði við förgun dýraleifa og tekur gjaldið mið af því að það standi undir kostnaði við förgunina.

Gjald fyrir eyðingu dýraleifa er lagt á heildarfjölda hverrar búfjártegundar samkvæmt búfjár­eftirlits­skýrslu og er eftirfarandi:

Nautgripir    700 kr./grip Sauðfé og geitfé    200 kr./grip
Hross    560 kr./grip Svín    400 kr./grip
Alifuglar        4 kr./fugl Loðdýr        4 kr./dýr

 

7. gr.

Aðfararheimild.

Verði vanskil á greiðslu gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari er hægt að innheimta gjöld með aðför, sbr. 4. mgr. 23. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og 1. gr. laga nr. 90/1989 um aðför. Gjöld eru tryggð með lögveðsrétti í viðkomandi fasteign í tvö ár eftir gjaldaga, sbr. 5. mgr. 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998.

 

8. gr.

Lagaheimild og gildistaka.

Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 23. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 737/2003, og öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1560/2022.

 

Samþykkt í bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar, 12. janúar 2024.

 

Sigurjón Andrésson bæjarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 18. janúar 2024