Skotar fyrstir í heimi til að boða gjaldfrjálsa túrtappa og dömubindi Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 25. nóvember 2020 21:30 Skotar hafa samþykkt lög sem kveða á um að öllum þeim sem á þurfi að halda verði tryggðar gjaldfrjálsar tíðarvörur. Getty Skoska þingið samþykkti samhljóða í gær frumvarp sem kveður á um að sveitarfélög verði að tryggja „öllum þeim sem á þurfa að halda“ tíðarvörur á borð við túrtappa, dömubindi, eða margnota tíðarvörur, gjaldfrjálst. Það var Monica Lennon, þingkona Verkamannaflokksins, sem lagði fram frumvarpið en hún hefur frá árinu 2016 barist fyrir því að binda endi á svokallaða „blæðinga-fátækt“ (e. period poverty). Hún segir löggjöfina „praktíska og framsækna“ sem ekki sé síður áríðandi nú á tímum heimsfaraldurs. „Blæðingar hætta ekki þrátt fyrir heimsfaraldur og vinnan að því að bæta aðgengi að nauðsynlegum túrtöppum, dömubindum og margnota tíðarvörum hefur aldrei áður verið mikilvægari,“ er haft eftir Lennon í frétt BBC. „Blæðinga-fátækt,“ vísar til þeirra sem ekki hafa efni á að kaupa nauðsynlegar tíðarvörur sökum lágra tekna. Sé miðað við að blæðingar standi að jafnaði yfir í fimm daga má ætla að kostnaður vegna tíðarvara í hverjum tíðarhring nemi allt að átta pundum samkvæmt frétt BBC, eða um 1.450 íslenskum krónum. Samkvæmt rannsókn sem náði til ríflega tvö þúsund þátttakenda sögðust einn af hverjum fjórum þátttakendum sem stunda nám í framhalds- eða háskóla eiga erfitt með að leggja út fyrir tíðarvörum. Samkvæmt sömu rannsókn hafa 10% stúlkna á Bretlandi ekki efni á tíðarvörum, 15% segjast eiga erfitt með að leggja út fyrir slíkum vörum og 19% segjast kaupa óhentugri en ódýrari vöru í ljósi kostnaðar þeirrar vöru sem þær vildu heldur nota. Finna fyrir skömm Auk þess að tryggja gjaldfrjálsar tíðarvörur er frumvarpinu ætlað að taka á fordómum gegn blæðingum. Rannsakendur segja þetta vandamál einkum eiga við um ungar stúlkur en samkvæmt rannsókninni höfðu 71% stúlkna á aldrinum 14-21 árs fundið fyrir skömm við það að kaupa tíðarvörur. Líkt og áður segir leggur frumvarpið þá skyldu á herðar 32 sveitarstjórnum í Skotlandi að tryggja öllum sem á þurfa að halda aðgengi að gjaldfrjálsum tíðarvörum. Það verður síðan undir hverju sveitarfélagi fyrir sig komið að ákveða með hvaða hætti þetta aðgengi verður tryggt. Þessi nýju lög í Skotlandi hafa vakið umræðu víðar um heim, meðal annars í Danmörku en Danska ríkisútvarpið hélt úti umræðuþræði í beinni útsendingu á vef sínum í kvöld um það hvort tíðarvörur ættu að vera gjaldfrjálsar í Danmörku þar sem lesendum gafst tækifæri til að senda inn spurningar og taka þátt í umræðunni. Alþingi samþykkti í fyrra frumvarp um lækkun virðisaukaskatts á tíðavörur og getnaðarvarnir úr efra þrepi niður í það neðra og tóku lögin þegar gildi. Skattar og tollar Heilbrigðismál Jafnréttismál Félagsmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin: Halla Tómasdóttir kjörin forseti Innlent Var nálægt því að draga framboð sitt til baka Innlent Ríkisstjórnin á erfiða daga fyrir höndum Innlent Fólk hafi kosið taktískt gegn Katrínu Innlent Ávarpaði stuðningsmenn af svölunum Innlent Veit ekki hvað tekur við en byrjar á kaffibolla Innlent Eiríkur Ingi nýr handhafi mets sem enginn vill eiga Innlent Fyrsti karlmakinn á Bessastöðum: „Draumaútkoman varð að veruleika” Innlent Svona var ávarp nýkjörinnar Höllu Tómasdóttur Innlent Batt á sig klút til heiðurs Höllu Innlent Fleiri fréttir Fjöldi loftárása á orkuver víðsvegar um Úkraínu Friðartillaga Ísraela sem Biden kynnti virðist fá hljómgrunn „Við búum í fasísku ríki“ Segjast hafa skotið á flugmóðurskip eftir loftárásir Þarf að greiða fyrrverandi 137 milljarða í kjölfar framhjáhalds Ólíklegt að Trump fari í fangelsi Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Bakhjarlar Úkraínu leyfa árásir í Rússlandi Heimilar notkun vopna frá Bandaríkjunum á rússneska grund Trump sakfelldur fyrir skjalafals í þagnargreiðslumáli Veita katalónskum aðskilnaðarsinnum sakaruppgjöf Stígur ekki til hliðar vegna umdeildra fána Gæsir og steggir að buga bæjaryfirvöld sem banna nekt og typpabúninga Svörtum vísað frá borði þegar kvartað var undan líkamslykt Ísraelsmenn taka yfir landamærin að Egyptalandi Flugvélin féll um 54 metra á fimm sekúndum Kviðdómendur leggjast undir feld í dag Gefa Úkraínumönnum eftirlitsflugvélar Útnefna Biden rafrænt til að koma honum örugglega á kjörseðilinn Fær ekki að bjóða sig fram fyrir Verkamannaflokkinn Þingmeirihluti ANC í hættu í Suður-Afríku Íbúar varaðir við rusl- og skítabelgjum frá Norður-Kóreu Segja árásir og aðgerðir Ísrael enn innan „rauðu línanna“ De Niro kallaði Trump skrímsli fyrir utan dómshúsið „Við höfum ekkert“ Ógiltu neitunarvald forseta til að koma fjölmiðlalögum í gegn Biðst afsökunar á ummælum um „faggaskap“ Yfir fimmtíu stig í hitabylgju í Pakistan Pólverjar víggirða landamærin í austri Forseti Perú kærður fyrir mútuþægni Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins Sjá meira
Skoska þingið samþykkti samhljóða í gær frumvarp sem kveður á um að sveitarfélög verði að tryggja „öllum þeim sem á þurfa að halda“ tíðarvörur á borð við túrtappa, dömubindi, eða margnota tíðarvörur, gjaldfrjálst. Það var Monica Lennon, þingkona Verkamannaflokksins, sem lagði fram frumvarpið en hún hefur frá árinu 2016 barist fyrir því að binda endi á svokallaða „blæðinga-fátækt“ (e. period poverty). Hún segir löggjöfina „praktíska og framsækna“ sem ekki sé síður áríðandi nú á tímum heimsfaraldurs. „Blæðingar hætta ekki þrátt fyrir heimsfaraldur og vinnan að því að bæta aðgengi að nauðsynlegum túrtöppum, dömubindum og margnota tíðarvörum hefur aldrei áður verið mikilvægari,“ er haft eftir Lennon í frétt BBC. „Blæðinga-fátækt,“ vísar til þeirra sem ekki hafa efni á að kaupa nauðsynlegar tíðarvörur sökum lágra tekna. Sé miðað við að blæðingar standi að jafnaði yfir í fimm daga má ætla að kostnaður vegna tíðarvara í hverjum tíðarhring nemi allt að átta pundum samkvæmt frétt BBC, eða um 1.450 íslenskum krónum. Samkvæmt rannsókn sem náði til ríflega tvö þúsund þátttakenda sögðust einn af hverjum fjórum þátttakendum sem stunda nám í framhalds- eða háskóla eiga erfitt með að leggja út fyrir tíðarvörum. Samkvæmt sömu rannsókn hafa 10% stúlkna á Bretlandi ekki efni á tíðarvörum, 15% segjast eiga erfitt með að leggja út fyrir slíkum vörum og 19% segjast kaupa óhentugri en ódýrari vöru í ljósi kostnaðar þeirrar vöru sem þær vildu heldur nota. Finna fyrir skömm Auk þess að tryggja gjaldfrjálsar tíðarvörur er frumvarpinu ætlað að taka á fordómum gegn blæðingum. Rannsakendur segja þetta vandamál einkum eiga við um ungar stúlkur en samkvæmt rannsókninni höfðu 71% stúlkna á aldrinum 14-21 árs fundið fyrir skömm við það að kaupa tíðarvörur. Líkt og áður segir leggur frumvarpið þá skyldu á herðar 32 sveitarstjórnum í Skotlandi að tryggja öllum sem á þurfa að halda aðgengi að gjaldfrjálsum tíðarvörum. Það verður síðan undir hverju sveitarfélagi fyrir sig komið að ákveða með hvaða hætti þetta aðgengi verður tryggt. Þessi nýju lög í Skotlandi hafa vakið umræðu víðar um heim, meðal annars í Danmörku en Danska ríkisútvarpið hélt úti umræðuþræði í beinni útsendingu á vef sínum í kvöld um það hvort tíðarvörur ættu að vera gjaldfrjálsar í Danmörku þar sem lesendum gafst tækifæri til að senda inn spurningar og taka þátt í umræðunni. Alþingi samþykkti í fyrra frumvarp um lækkun virðisaukaskatts á tíðavörur og getnaðarvarnir úr efra þrepi niður í það neðra og tóku lögin þegar gildi.
Skattar og tollar Heilbrigðismál Jafnréttismál Félagsmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin: Halla Tómasdóttir kjörin forseti Innlent Var nálægt því að draga framboð sitt til baka Innlent Ríkisstjórnin á erfiða daga fyrir höndum Innlent Fólk hafi kosið taktískt gegn Katrínu Innlent Ávarpaði stuðningsmenn af svölunum Innlent Veit ekki hvað tekur við en byrjar á kaffibolla Innlent Eiríkur Ingi nýr handhafi mets sem enginn vill eiga Innlent Fyrsti karlmakinn á Bessastöðum: „Draumaútkoman varð að veruleika” Innlent Svona var ávarp nýkjörinnar Höllu Tómasdóttur Innlent Batt á sig klút til heiðurs Höllu Innlent Fleiri fréttir Fjöldi loftárása á orkuver víðsvegar um Úkraínu Friðartillaga Ísraela sem Biden kynnti virðist fá hljómgrunn „Við búum í fasísku ríki“ Segjast hafa skotið á flugmóðurskip eftir loftárásir Þarf að greiða fyrrverandi 137 milljarða í kjölfar framhjáhalds Ólíklegt að Trump fari í fangelsi Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Bakhjarlar Úkraínu leyfa árásir í Rússlandi Heimilar notkun vopna frá Bandaríkjunum á rússneska grund Trump sakfelldur fyrir skjalafals í þagnargreiðslumáli Veita katalónskum aðskilnaðarsinnum sakaruppgjöf Stígur ekki til hliðar vegna umdeildra fána Gæsir og steggir að buga bæjaryfirvöld sem banna nekt og typpabúninga Svörtum vísað frá borði þegar kvartað var undan líkamslykt Ísraelsmenn taka yfir landamærin að Egyptalandi Flugvélin féll um 54 metra á fimm sekúndum Kviðdómendur leggjast undir feld í dag Gefa Úkraínumönnum eftirlitsflugvélar Útnefna Biden rafrænt til að koma honum örugglega á kjörseðilinn Fær ekki að bjóða sig fram fyrir Verkamannaflokkinn Þingmeirihluti ANC í hættu í Suður-Afríku Íbúar varaðir við rusl- og skítabelgjum frá Norður-Kóreu Segja árásir og aðgerðir Ísrael enn innan „rauðu línanna“ De Niro kallaði Trump skrímsli fyrir utan dómshúsið „Við höfum ekkert“ Ógiltu neitunarvald forseta til að koma fjölmiðlalögum í gegn Biðst afsökunar á ummælum um „faggaskap“ Yfir fimmtíu stig í hitabylgju í Pakistan Pólverjar víggirða landamærin í austri Forseti Perú kærður fyrir mútuþægni Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins Sjá meira
Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins